Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 11. apríl 2021 23:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Keane: Dansaði svona eftir helling af Bacardi og Coke
Jesse Lingard.
Jesse Lingard.
Mynd: Getty Images
Roy Keane, fyrrum fyrirliði Manchester United, gerði grín að fagni Jesse Lingard gegn Leicester í dag.

Lingard hefur verið algjörlega magnaður fyrir West Ham upp á síðkastið en hann er í láni frá Manchester United.

Lingard skoraði tvennu í dag í sigri á Leicester og fagnaði með því að stíga dansspor. Keane var léttur í lund í myndveri Sky Sports þegar hann sá fagnið.

Hann var spurður að því hvaða einkunn hann myndi gefa fagninu og hann svaraði: „Einn."

„Ég var vanur að dansa svona en þá var ég búinn með helling af Bacardi og Coke."


Athugasemdir
banner
banner
banner