08.09.26 - 10:24
Fótbolti.net
Ný íslensk þjónusta - „Þetta mun klárlega bæta þjálfun á landinu“
Bubka Sports Lab er byggt upp fyrir leikmenn, þjálfara og félög

„Þetta mun klárlega bæta þjálfun á Íslandi“ segir Heimir Hallgrímsson.

Mynd: EPA

Mynd: Bubka Sports Lab

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bubka Sports Lab fer í gang þann 20. september en um er að ræða nýjan íslenskan vettvang fyrir leikmenn, þjálfara og fótboltafélög. Hann er að stærstum hluta stafrænn og samkvæmt fréttatilkynningu er markmiðið að gera sérhæfða þekkingu, þjálfun, fræðslu og þjónustu aðgengilega á einum stað.
„Fyrir iðkendur er gott að hafa yfirsýn yfir það sem er í boði þegar kemur að aukaæfingum. Sérstaklega fyrir þau áhugasömustu og efnilegustu. Fyrir þjálfara er þetta nýtt og þarft verkfæri. Nú geta þjálfarar fengið sérfræðiþekkingu frá okkar bestu þjálfurum á mörgum sviðum þjálfunar," segir Heimir Hallgrímsson, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands og núverandi þjálfari Írlands, en hann er einn af þeim sem koma að verkefninu.
„Fyrir félögin er gott að geta bókað námskeið fyrir iðkendur eða þjálfara félagsins (alla á sama tíma). Þetta mun klárlega bæta þjálfun á Íslandi."
„Ég vildi að þetta hefði verið í boði fyrir nokkrum árum. Þjálfun er alltaf að breytast og kröfurnar eru alltaf að aukast. Í dag þarf þjálfari að hafa meiri þekkingu en áður fyrr. Tækniþekking er orðinn stór þáttur í starfi þjálfarans. Eðlilega eru þjálfarar mis góðir á því sviði eins og öðrum. Því er gott að geta leitað til þeirra sem eru okkur fremri, hvort sem það er tækniþekking, styrktarþjálfun, sálfræði, næringarfræði eða á öðrum sviðum," segir Heimir.

Aukið aðgengi að okkar helstu sérfræðingum
Að Bubka Sports Lab koma margir af helstu þjálfurum landsins, sérfræðingar með reynslu úr íslenskri afreks- og atvinnumennsku og sérfræðingar með sérþekkingu á ólíkum þáttum leiksins.
Leikmenn geta þar sótt sérhæfða þjálfun og þjónustu út frá eigin þörfum og markmiðum. Þjálfarar geta nálgast fræðslu, verkfæri og sérfræðiþekkingu og jafnframt miðlað eigin þekkingu í gegnum vettvanginn. Fótboltafélög geta aukið aðgengi að sérfræðingum.
„Hugmyndin byggir á einfaldri staðreynd: innan íslenskrar knattspyrnu er mikil þekking til staðar en hún er dreifð og aðgengi að sérhæfðri þjónustu getur verið mismunandi eftir aðstæðum, tengslum og fjármagni. Á sama tíma hafa knattspyrnufélög takmarkaðan tíma, mannafla og fjármagn til að sinna öllum þeim þáttum sem geta skipt máli í þróun hvers leikmanns og þjálfara," segir í fréttatilkynningu.
Heimir, Arnar Gunnlaugsson og Elísabet Gunnarsdóttir eru meðal þjálfara sem tengjast Bubka Sports Lab. Verkefnið fer af stað 20. september 2026 og þá verður þjónustan kynnt nánar ásamt þeim þjálfurum og sérfræðingum sem koma að verkefninu.