Pepsi Max-deildar liðið Valur var undir lok júnímánaðar orðað við Cloé Lacasse, leikmann Benfica og fyrrum leikmann ÍBV.
Sjá einnig:
Cloe ekki ennþá lögleg með íslenska landsliðinu
Segja Cloe Lacasse mögulega á leiðinni í Val
Sjá einnig:
Cloe ekki ennþá lögleg með íslenska landsliðinu
Segja Cloe Lacasse mögulega á leiðinni í Val
Eiður Ben Eiríksson, annar af þjálfurum Vals, var spurður út í þessar sögusagnir í viðtali eftir 3-1 sigur á ÍBV í gær. Viðtalið í heild sinni má sjá neðst í fréttinni.
„Við höfum klárlega áhuga á góðum leikmönnum, það er augljóst og við erum alltaf að leita leiða til að styrkja liðið okkar," sagði Eiður í gær.
„Við spurðumst fyrir um Cloé. Hún er samningsbundin Benfica og ólíklegt að hún komi til okkar í sumar."
Athugasemdir