Nökkvi Þeyr skoraði gegn gömlu félögunum - Kristian hetja Twente

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Íslendingar voru í eldlínunni í æfingaleikjum víða um Evrópu í dag. Nökkvi Þeyr Þórisson var hetja Sparta Rotterdam þegar hann skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu í sigri á Telstar.
Nökkvi var á láni hjá Telstar seinni hluta síðasta tímabils og hjálpaði liðinu að bjarga sér frá falli úr hollensku deildinni.

Kristian Nökkvi Hlynsson tryggði Twente 3-2 sigur á gríska félaginu PAOK þegar hann skoraði sigurmarkið á fjórðu mínútu í uppbótatíma.
Andri Lucas Guðjohnsen var í byrjunarliði Blackburn sem gerði markalaust jafntefli gegn Accrington.
Sverrir Ingi Ingason var í byrjunarliði gríska liðsins Panathinaikos þegar liðið vann 3-0 sigur á svissneska liðinu Grasshoppers.
Ólafur Guðmundsson var í byrjunarliði Álasund sem gerði 2-2 jafntefli gegn Molde í norsku deildinni. Davíð Snær Jóhannsson er á meiðslalistanum. Álasund er í 12. sæti með 12 stig eftir 12 umferðir.
Kolbeinn Þórðarson var í byrjunarliði Valerenga sem tapaði 4-0 gegn Tromsö. Valerenga er í 10. sæti með 14 stig.