Man Utd ætlar að bjóða Calvert-Lewin samning - Al Nassr á eftir Rodrygo - Chelsea fylgist með stöðu Nwaneri
   mið 11. nóvember 2020 23:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
„Versti stjóri í sögu úrvalsdeildarinnar" að byrja illa með hollenska liðið
Jose Mourinho kallaði á sínum tíma Frank de Boer versta stjóra í sögu úrvalsdeildarinnar.

De Boer tók við Crystal Palace í júní árið 2017 en var rekinn tíu vikum seinna. Liðið tapaði fyrstu fjórum leikjum sínum í úrvalsdeildinni og skoraði ekki mark, versta byrjun félags í 93 ár í efstu deild.

Frank tók við hollenska landsliðinu í haust þegar Ronald Koeman tók við Barcelona. Liðið gerði 1-1 jafntefli gegn Spáni í dag og hefur Frank mistekist að vinna leik í fyrstu fjórum leikjum sínum sem þjálfari liðsins. Leikirnir hafa verið gegn Bosníu og Hersegóvínu, Mexíkó, Spáni og Ítalíu.

Það er í fyrsta sinn í sögu hollenska landsliðsins sem þjálfari vinnur ekki leik í fyrstu fjórum leikjum sínum. Það var Sergio Canales sem skoraði mark Spánverja en Donny van de Beek skoraði mark Hollendinga.

Sjá einnig:
Úrslit úr vináttulandsleikjum kvöldsins

Athugasemdir
banner