11.11.26 - 07:30
Brynjar Ingi Erluson
„Það þurfti að gefa mér hjartastuð tveimur dögum fyrir fyrsta leik á HM“

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Skoski miðjumaðurinn Scott McTominay segir að sumarið hjá honum hafi einkennst af vonbrigðum og miklum erfiðleikum en að hann líti á björtu hliðarnar í dag.
McTominay glímdi við hjartavandamál skömmu eftir komuna til Bandaríkjanna fyrir heimsmeistaramótið í sumar.
Nokkrum dögum fyrir fyrsta leikinn gegn Haítí var greint frá því að hann hefði misst af æfingu vegna magavandamála, en síðar kom í ljós að staðan var mun alvarlegri en talið var í fyrstu.
McTominay hafði verið lagður inn á sjúkrahús vegna verkja fyrir brjósti og þurfti meðal annars að gangast undir hjartastuðmeðferð.
„Það þurfti að gefa mér hjartastuð tveimur dögum fyrir leikinn gegn Haítí. Ég var í hundrað prósent leikformi, en þegar maður liggur á sjúkrahúsi tveimur dögum fyrir fyrsta leikinn á HM og er á leið í svæfingu eru það ekki beint kjöraðstæður, er það nokkuð?“
„Ég hafði undirbúið mig vel og var í góðu formi, en svo gerist eitthvað svona og maður spyr sig: 'Af hverju þurfti þetta að koma fyrir mig?'“
„Þetta er engin afsökun, en maður verður að horfa á þetta sem hluta af ferlinu. HM fór eins og það fór og ég eyddi næstu tveimur eða þremur vikum í að sleikja sárin. Mér leið ekki vel andlega og þurfti tíma til að jafna mig.“
McTominay viðurkennir að þetta hafi verið gríðarlega erfiður tími, bæði líkamlega og andlega, en að lokum hafi honum tekist að horfa á björtu hliðarnar.
„Þetta voru líklega mestu vonbrigði sem ég hef upplifað á ferlinum, en ég reyni alltaf að horfa á björtu hliðarnar, þótt það hafi tekið mig tvær vikur að komast yfir þetta,“ sagði McTominay.
Hann gekkst síðan undir hjartaaðgerð í september og missti af nokkrum leikjum með Napoli, en hefur nú náð sér að fullu.