Fotbolti.net
11.11.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Þessir eru tilnefndir sem besti leikmaður Afríku

Achraf Hakimi mun líklega verja titilinn

Achraf Hakimi mun líklega verja titilinn

Canon

Mynd: EPA

Tíu leikmenn hafa verið tilnefndir til verðlaunanna sem besti fótboltamaður Afríku árið 2026.
Afríkumaður ársins verður valinn við hátíðlega athöfn í Lagos í Nígeríu þann 2. desember.

Achraf Hakimi, leikmaður Paris Saint-Germain og marokkóska landsliðsins, hlaut verðlaunin á síðasta ári og þykir afar líklegur til að hreppa þau annað árið í röð.

PSG vann tvennuna undir stjórn Luis Enrique og var Hakimi einn af lykilmönnum liðsins í þeim frábæra árangri.

Það er erfitt að sjá einhvern annan hreppa verðlaunin, en þeir Ismaila Sarr, Sadio Mane, Ismael Saibari, Papa Gueye og Brahim Diaz eru líklega helstu keppinautar hans. Þeir léku allir til úrslita í Afríkukeppninni fyrr á árinu.

Senegal vann úrslitaleikinn gegn Marokkó, en síðar var Marokkó dæmdur sigur þar sem leikmenn Senegal gengu af velli meðan á leiknum stóð.

Senegal hefur áfrýjað þeirri niðurstöðu til CAS, Alþjóðaíþróttadómstólsins í Lausanne í Sviss, og er búist við niðurstöðu í málinu í lok nóvember.

Þessir eru tilnefndir:
Amad Diallo (Man Utd/Fílabeinsströndin)
Yoane Wissa (Newcastle United/Kongó)
Antoine Semenyo (Man City/Gana)
Achraf Hakimi (PSG/Marokkó)
Ismael Sairabi (Bayern/Marokkó)
Brahim Diaz (Real Madrid/Marokkó)
Pape Gueye (Villarreal/Senegal)
Ismaila Sarr (Crystal Palace/Senegal)
Sadio Mane (Al Nassr/Senegal)
Teboho Mokoena (Mamelodi Sundowns/Suður-Afríka)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.