Fotbolti.net
11.11.26 - 12:10
Kári Snorrason

Jói Berg: Ekki í gramm í yfirvigt hjá Pochettino

Helluharður.

Helluharður.

Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino er sagður vera nálægt því að taka við sem næsti stjóri Manchester United. Enn hefur ekki verið tilkynnt um brottrekstur Michael Carrick en búist er við að honum verði vikið frá störfum síðar í dag eða á morgun.

Jóhann Berg Guðmundsson, fyrrverandi landsliðsmaður og leikmaður Burnley, sagðist í hlaðvarpinu Sjöan þekkja til nokkurra leikmanna sem höfðu leikið undir hans stjórn og segir hann Argentínumanninn kröfuharðan.
Pochettino tilbúinn að skrifa undir við Man Utd
TENGT EFNI

Pochettino tilbúinn að skrifa undir við Man Utd

„Hann þarf að koma inn með sitt teymi og það þarf að gefa honum alvöru traust. Ég veit að hann er helluharður þjálfari, það er alvöru standard. Alvöru hlaup og alvöru æfingar.

Ég þekki nokkra sem voru með hann í Southampton og þar var æft. Þú varst ekki gramm í yfirvigt hjá honum. Það er litið á allt. Það er mögulega gaur sem þarf að fá inn, en það þarf að gefa honum tíma,“
sagði Jóhann.



Lagði skóna á hilluna fyrr á árinu.

Lagði skóna á hilluna fyrr á árinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.