Fotbolti.net
11.11.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Meistaradeild kvenna í dag - Emelía í Belgíu

Emelía Óskars verður í eldlínunni með Köge í dag

Emelía Óskars verður í eldlínunni með Köge í dag

Canon

Mynd: HB Köge

MeistaradeildKvennaboltinn
Emelía Óskarsdóttir verður í eldlínunni með HB Köge sem sækir Oud-Heverlee heim í deildarkeppni Meistaradeildar kvenna í dag.
Orri orðlaus yfir systur sinni
TENGT EFNI

Orri orðlaus yfir systur sinni

Landsliðskonan hefur verið í frábæru formi með Köge undanfarið, raðað inn mörkum og lagt upp fyrir liðsfélaga sína.

Orri Steinn Óskarsson, landsliðsfyrirliði Íslands og bróðir Emelíu, ræddi um systur sína í viðtali á dögunum og sagði hana hafa alla burði til að verða besta fótboltakona í heimi.

Emelía verður væntanlega í byrjunarliði Köge gegn Oud-Heverlee í dag, þar sem liðið fær tækifæri til að ná sínum öðrum sigri í keppninni.

Hún skoraði einmitt í fyrsta sigri Köge í keppninni, en það var jafnframt hennar fyrsta mark í Meistaradeildinni.

Leikir dagsins:
17:45 Oud-Heverlee - Koge
20:00 Juventus - Lyon
20:00 SL Benfica - Austria Wien
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.