11.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Tveir framlengja við Vestra

Mynd: Vestri

Mynd: Vestri
Vestri hefur framlengt samninga tveggja uppalinna leikmanna, en þeir Birkir Eydal og Marinó Steinar Hagbarðsson hafa báðir skrifað undir samninga sem gilda út árið 2028.
Birkir er 26 ára gamall og kom við sögu í sautján leikjum með Vestra í Lengjudeildinni í sumar.
Hann lék einnig gegn Qarabag og RFS í undankeppni Evrópudeildarinnar og Sambandsdeildarinnar.
Birkir hefur nú skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Vestra og fagnar félagið því að halda honum innan sinna raða.
„Við erum afar ánægð með að Birkir hafi valið Vestra áfram þar sem hann leiðir ávallt með góðu fordæmi og leggur sig alltaf fram. Hann er vandfundinn sá knattspyrnumaður sem er í betra formi en Birkir Eydal,“ segir í tilkynningu Vestra.
Á sama tíma tilkynnti Vestri að Marinó Steinar hefði einnig framlengt samning sinn við félagið út árið 2028.
Marinó er aðeins 16 ára gamall og vakti mikla athygli með frammistöðu sinni á undirbúningstímabilinu.
Hann lék alls níu leiki í Lengjudeildinni í sumar og skoraði eitt mark, en það kom gegn HK og var sérlega glæsilegt. Þá fékk hann einnig tækifæri í undankeppni Evrópumótanna.
Marinó er yngsti leikmaðurinn sem hefur komið við sögu í Evrópudeildinni á þessu tímabili og þykir mikið efni. Hann heldur til reynslu hjá ítalska félaginu Bologna í lok mánaðarins, en áður hafði hann einnig fengið boð um að æfa með Atalanta.
Vestri hafnaði í níunda sæti Lengjudeildarinnar í sumar með 27 stig.

Lengjudeild karla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Afturelding | 22 | +32 | 45 |
| 2 | Þróttur R. | 22 | +25 | 43 |
| 3 | Fylkir | 22 | +13 | 40 |
| 4 | HK | 22 | +12 | 38 |
| 5 | Njarðvík | 22 | +9 | 38 |
| 6 | Leiknir R. | 22 | +1 | 28 |
| 7 | ÍR | 22 | -6 | 28 |
| 8 | Grótta | 22 | -7 | 27 |
| 9 | Vestri | 22 | -13 | 27 |
| 10 | Völsungur | 22 | -12 | 26 |
| 11 | Grindavík | 22 | -10 | 25 |
| 12 | Ægir | 22 | -44 | 9 |