Fotbolti.net
11.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Þriðji leikmaðurinn sem dregur sig úr hópnum vegna meiðsla

Þriðji leikmaðurinn sem dregur sig úr hópnum vegna meiðsla
Canon

Mynd: EPA

Franski miðjumaðurinn Aurelien Tchouameni missir af komandi landsleikjum Frakklands vegna meiðsla.
Zinedine Zidane valdi Tchouameni í 23 manna landsliðshópinn fyrir leikina gegn Tyrklandi og Ítalíu, en hann þurfti að draga sig úr hópnum í gær vegna meiðsla.

Tchouameni er þegar snúinn aftur til Spánar þar sem Real Madrid mun annast meðhöndlun meiðslanna.

Hann er þriðji leikmaðurinn sem dettur út úr franska landsliðshópnum vegna meiðsla, en Marcus Thuram, framherji Inter, og Pierre Kalulu, leikmaður Juventus, hafa einnig þurft að draga sig úr hópnum.

Eli Junior Kroupi, leikmaður Bournemouth, var kallaður inn í stað Thuram og Sael Kumbedi, leikmaður Wolfsburg, kom inn fyrir Kalulu.

Enn hefur hins vegar enginn verið valinn í stað Tchouameni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.