Fotbolti.net
11.11.26 - 06:00
Brynjar Ingi Erluson

Kári Steinn áfram hjá Leikni

Kári Steinn áfram hjá Leikni
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kári Steinn Hlífarsson hefur framlengt samning sinn við Leikni út 2027 en Leiknismenn greina frá þessu á Instagram.
Kári er 26 ára sóknarsinnaður leikmaður sem gekk til liðs við Leikni frá Aftureldingu fyrir tveimur árum.

Hann hefur skorað níu mörk í 46 leikjum fyrir félagið í deild og bikar á þeim tíma.

Kári hefur nú framlengt samning sinn við Leikni um eitt ár og verður því áfram í Efra-Breiðholti út árið 2027.

Áður lék Kári með yngri flokkum Breiðabliks og Stjörnunnar, auk þess sem hann spilaði með KFG, venslafélagi Stjörnunnar, í 3. deildinni.

Leiknismenn höfnuðu í 6. sæti Lengjudeildarinnar á nýafstöðnu tímabili með 28 stig.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.