11.11.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson
Evrópubikarinn í dag - Hvaða lið komast í átta liða úrslit?

Diljá og Brann spila í Póllandi

Mynd: Brann

Diljá og Brann spila í Póllandi

Mynd: Brann

Síðari leikir sextán liða úrslita Evrópubikarsins eru spilaðir í dag og í kvöld.
Diljá Ýr Zomers og Noregsmeistarar Brann heimsækja Czarni til Póllands, en Brann er í góðri stöðu eftir 3-0 sigur í fyrri leiknum.
Einn Íslendingaslagur er á dagskrá þegar Bröndby tekur á móti Rosenborg. Hafrún Rakel Halldórsdóttir leikur með Bröndby og Selma Sól Magnúsdóttir með Rosenborg, en staðan er 1-1 eftir fyrri leikinn.
Ída Marín Hermannsdóttir og Guðrún Arnardóttir verða í eldlínunni með Hammarby sem tekur á móti Myjava frá Slóvakíu. Hammarby er með 3-1 forystu eftir fyrri leikinn.
Þá verður Hlín Eiríksdóttir í eldlínunni með Malmö sem mætir hollenska stórliðinu Ajax. Malmö hefur 2-1 forskot fyrir síðari leikinn.
Leikir dagsins:
16:00 Czarni - Brann (0-3)
17:00 Bröndby - Rosenborg (1-1)
17:00 Fenerbahce - Real Sociedad (0-2)
17:30 Eintracht Frankfurt - PSV (2-0)
18:00 Hammarby - Myjava (3-1)
18:00 Malmö - Ajax (2-1)