Fotbolti.net
11.11.26 - 17:56
Jóhann Þór Hólmgrímsson

U19: Frábær endurkoma gegn Evrópumeisturum Spánar

Ásbjörn Líndal Arnarsson

Ásbjörn Líndal Arnarsson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Spánn 2-2 Ísland
1-0 Alexis Ciria ('10 , víti)
2-0 Egill Orri Arnarsson ('35 , sjálfsmark)
2-1 Gabríel Snær Gunnarsson ('72 )
2-2 Ásbjörn Líndal Arnarsson ('75 )
Íslenska U19 landsliðið náði í stórkostleg úrslit gegn Evrópumeisturum Spánar í fyrsta leik í fyrri umferð í undankeppni Evrópumótsins.

Alexis Ciria, sem spilar með varaliði Real Madrid, kom Spáni yfir með marki úr vítaspyrnu snemma leiks og Egill Orri Arnarsson varð síðan fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Íslenska liðið gafst ekki upp og Skagamaðurinn Gabríel Snær Gunnarsson, sem er á mála hjá Elfsborg, minnkaði muninn.

Aðeins fimm mínútum síðar skoraði Þórsarinn Ásbjörn Líndal Arnarsson og tryggði Íslandi stig.

Spánn var mun sigurstranglegri aðilinn en Spánn er sigursælasta liðið á EM í þessum aldursflokki með 13 titla. Liðið hefur unnið tvö af síðustu þremur mótum og tapaði í úrslitum í fyrra.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.