11.11.26 - 18:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ungstirni PSG tekur sæti Tchouameni í franska hópnum

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Senny Mayulu, tvítugur miðjumaður PSG, hefur verið kallaður inn í landsliðshóp Frakka. Hann tekur sæti Aurelien Tchouameni, leikmann Real Madrid, sem er meiddur.
Mayulu steig sín fyrstu skref með aðalliði PSG árið 2024. Hann hefur komið við sögu í níu leikjum á þessu tímabili. Hann hefur skorað þrjú mörk og lagt upp tvö í síðustu fjórum leikjum.

Hann á fjóra landsleiki að baki fyrir U21 landslið Frakka.
Tchouameni er þriðji leikmaðurinn sem dregur sig úr hópnum á eftir Marcus Thuram, framherja Inter, og Pierre Kalulu, leikmanni Juventus.
Eli Junior Kroupi, leikmaður Bournemouth, var kallaður inn í stað Thuram og Sael Kumbedi, leikmaður Wolfsburg, kom inn fyrir Kalulu.