Fotbolti.net
12.02.13 - 11:30
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Ben Foster í rammanum

Ben Foster, markvöður WBA.

Ben Foster, markvöður WBA.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United náði 12 stiga forystu í ensku úrvalsdeildinni um helgina sem er liðin. Reading, Wigan og QPR töpuðu öll leikjum sínum í botnbaráttunni.

Garth Crooks hjá BBC valdi úrvalslið umferðarinnar.


Markvörður - Ben Foster (West Brom)
Varði oft frábærlega gegn Liverpool, þar á meðal vítaspyrnu frá Steven Gerrard. Sú varsla var vendipunktur í leiknum.

Varnarmaður - Cesar Azpilicueta (Chelsea)
Snerti boltann 97 sinnum í 4-1 sigri gegn Wigan. Skapaði fullt fram á við.

Varnarmaður - Nemanja Vidic (Man Utd)
Endurkoma Vidic hefur snúið við mönnum sem héldu að Manchester United væri ekki að fara að klára þennan titil.

Varnarmaður - Gareth McAuley (West Brom)
Skoraði og var auk þess mjög traustur varnarlega í öflugum sigri á Liverpool.

Varnarmaður - Bacary Sagna (Arsenal)
Leysti af í miðverðinum hjá Arsenal og átti gallalausan leik.

Miðjumaður - Jason Puncheon (Southampton)
Ef hann heldur áfram að spila svona mun nafn hans aðeins stækka. Er sífellt að.

Miðjumaður - Frank Lampard (Chelsea)
Hefur Chelsea efni á að missa miðjumann sem skorar 20 mörk á tímabilinu?

Miðjumaður - Gareth Bale (Tottenham)
Bale minnir á Messi um þessar mundir. 10 mörk í síðustu 12 deildarleikjum.

Miðjumaður - Santi Cazorla (Arsenal)
Lið Arsenal var hreinlega frábært í 45 mínútur gegn Sunderland og stjarna Cazorla skein skært.

Miðjumaður - Charles N\'Zogbia (Aston Villa)
Það var við miklu búist af N\'Zogbia þegar hann kom til Villa sumarið 2011 en hann hefur ekki staðið undir væntingum. Frammistaða hans gegn West Ham sýndi þó að enn er von...

Sóknarmaður - Michu (Swansea)
Þessi magnaði Spánverji er kominn í stuð. Hefur skorað fjögur gegn QPR á leiktíðinni.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.