Matthías: Erum með betra lið en í fyrra
Auglýsing

Matthías eftir leik í kvöld

Mynd: Skjáskot

Matthías eftir leik í kvöld

Mynd: Skjáskot

Matthías Ásgeir Ramos Rocha var keikur þrátt fyrir stór tap fyrir Kórdrengjum í kvöld. Matthías er spenntur fyrir komandi átökum í 4 deildinni í sumar.
Aðspurður hvernig tilfinningin væri svona strax eftir leik sagði Matthías „Ekki góð, hefðum getað gert betur og við gáfum þeim mörk fannst mér. Erum ekki sáttir með þetta og við hefðum getað gert betur að standa í þeim."
Matthías hefur ekki miklar áhyggjur af því að erfitt verði að peppa liðið fyrir fyrsta deildarleikinn eftir svona stór tap í bikarnum.
„Það verður bara gaman að spila fyrsta leikinn í deildinni á móti KM á heimavelli. Ég held að menn séu bara gíraðir í það og við ætlum okkur að gera góða hluti"
Markmiðið hjá piltunum í Hveragerði er að komast upp um deild.
„Við erum með hóp í það, við erum með mjög öflug lið og betra lið en í fyrra. Við stefnum á að gera ennþá betur"