Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
   fös 12. júní 2026 12:13
Kári Snorrason
Afhjúpa minningarstein til heiðurs Sigursteini Gíslasyni
Mynd: ÍA
ÍA tekur á móti Víkingi í átta liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Fyrir leik verður afhjúpaður minningarsteinn til heiðurs Sigursteins Gíslasonar.

Sigursteinn er ein mesta goðsögn í sögu ÍA en hann lést árið 2012, 44 ára að aldri, eftir baráttu við krabbamein.

Steinninn hefur verið reistur við leikmannainnganginn á ÍA vellinum. Framvegis mun keppnisboltinn hvíla á steininum fyrir leik og tekinn af honum og borinn inn á völl fyrir alla heimaleiki ÍA.

Sigursteinn lék alls 335 leiki fyrir félagið og skoraði 40 mörk. Hann vann alls níu Íslandsmeistaratitla með bæði ÍA og KR.


Slapp
banner