Hall vill fara til Man Utd - Líka áhugi Man Utd á Robinson - Mourinho vill fá Gvardiol frá City
banner
   fös 12. júní 2026 09:10
Elvar Geir Magnússon
Maður dagsins á HM - Lenti í lífshættu á leikvellinum
Raúl Jimenez (Mexíkó)
leikmaður dagsins
Raúl Jimenez skoraði fyrir Mexíkó í gær. Hér bendir hann til himins til minningar um Raul Jimenez Vega, föður sinn, sem lést í mars.
Raúl Jimenez skoraði fyrir Mexíkó í gær. Hér bendir hann til himins til minningar um Raul Jimenez Vega, föður sinn, sem lést í mars.
Mynd: EPA
Jimenez fékk lífshættulegt höfuðhögg 2020.
Jimenez fékk lífshættulegt höfuðhögg 2020.
Mynd: EPA
Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.

Keppni er farin af stað og Mexíkó, einn af gestgjöfunum þremur, vann 2-0 sigur gegn Suður-Afríku í opnunarleik mótsins á Azteca leikvangnum sögufræga í gærkvöldi.

Brutust út miklar tilfinningar
Það brutust út miklar tilfinningar hjá Raúl Jimenez þegar þessi 35 ára sóknarmaður skoraði annað mark Mexíkóa. Hann skorað loksins sitt fyrsta HM mark, eitthvað sem þótti óhugsandi fyrir nokkrum árum.

Jimenez lenti í lífshættu á fótboltavellinum þegar hann höfuðkúpubrotnaði í leik með Wolves í ensku úrvalsdeildinni í nóvember 2020. Hann missti meðvitund þegar hann lenti í samstuði við David Luiz í leik gegn Arsenal og missti meðvitund. Honum var veitt súrefni á vellinum.

Batinn var hægur og hann gat ekki æft með liðsfélögum sínum í sex mánuði. Hann spilaði ekki með Úlfunum í átta mánuði og skoraði sitt fyrsta mark eftir höfuðhöggið í september 2021.

Benti til himins
Jimenez, sem er með 46 landsliðsmörk í 125 leikjum fyrir Mexíkó, gekk í dögunum aftur í raðir Wolves eftir að hafa verið hjá Fulham undanfarin ár.

Þegar Jimenez skoraði markið í gær benti hann til himins, til minningar um Raul Jimenez Vega föður sinn sem lést í mars. Það voru því ýmsar tilfinningar sem brutust út hjá Jimenez þegar hann skoraði markið í gær.


Slapp
banner
banner
banner