12.06.26 - 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Uppselt á toppslaginn í Víkinni

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Uppselt er á toppslag Víkings og KR í toppslag í Bestu deild karla á þriðjudag, en Víkingar greina frá þessu á X.
Víkingur og KR eru í harðri toppbaráttu, en meistararnir eru með þriggja stiga forystu á KR eftir tíu umferðir.
Mikill áhugi er á þessum toppslag og hefur Víkingur greint frá því að uppselt sé á leikinn.
Árskortshafar og VIP-gestir fengu forgang á miðana og almenn miðasala hófst síðan klukkan 16:00. Miðarnir seldust upp á aðeins nokkrum klukkutímum.
Það verður því smekkfullur völlur þegar liðin eigast við á þriðjudag. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Víkingsvelli. Hann verður að sjálfsögðu í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Kæru Víkingar. Það er uppselt á leik Víkings og KR sem fram fer þann 16. júní næstkomandi í Hamingjunni. Nú er það fullur fókus á verkefnið gegn ÍA annað kvöld í Mjólkurbikarnum hjá strákunum og FH á laugardaginn í Hamingjunni hjá stelpunum. Takk. ?????? pic.twitter.com/VpPVMqq4qj
— Víkingur Fótbolti (@vikingurfc) June 11, 2026
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 16 | +42 | 43 |
| 2 | KR | 16 | +22 | 35 |
| 3 | Fram | 15 | +13 | 33 |
| 4 | Breiðablik | 15 | +8 | 26 |
| 5 | Valur | 16 | -6 | 19 |
| 6 | Keflavík | 16 | -8 | 19 |
| 7 | ÍBV | 15 | -7 | 16 |
| 8 | Stjarnan | 15 | -8 | 15 |
| 9 | ÍA | 15 | -12 | 15 |
| 10 | KA | 15 | -8 | 14 |
| 11 | FH | 15 | -11 | 12 |
| 12 | Þór | 15 | -25 | 11 |