Mourinho orðaður við Real Madrid - Curtis Jones til Aston Villa?
   sun 12. júlí 2020 05:55
Brynjar Ingi Erluson
England í dag - Evrópudeildarbarátta í London
Tottenham og Aston Villa eigast við á Tottenham Hotspur-leikvanginum í 35. umferð ensku úrvalsdeildarinnar í dag en í heildina eru fjórir leikir á dagskrá í dag.

Gylfi Þór Sigurðsson og hans menn í Everton heimsækja öflugt lið Wolves klukkan 11:00. Everton þarf sigur til að eiga einhvern möguleika á sæti í Evrópukeppni á meðan Wolves er í ágætri stöðu í 7. sæti.

Nú er að duga eða drepast fyrir Aston Villa sem fær Crystal Palace á Villa Park. Aston Villa er í næst neðsta sæti með 27 stig, sjö stigum á eftir Watford. Villa getur því hleypt spennu í fallbaráttuna með sigri á meðan Crystal Palace er með öruggt sæti í deildinni.

Leikur dagsins er leikur Tottenham og Arsenal á Tottenham Hotspur-leikvanginum. Bæði lið vilja ná Evrópudeildarsæti og eru í ágætis möguleika. Arsenal er með 50 stig á meðan Tottenham er með 49 stig.

Bournemouth er í svipaðri stöðu og Aston Villa. Liðið er í 18. sæti og blasir fall við liðinu. Það er sex stigum á eftir Watford sem er í öruggu sæti en Bournemouth hefur átt í miklu basli og þá sérstaklega eftir hlé. Leicester þarf sigur í baráttu sinni um Meistaradeildarsæti.

Leikir dagsins:
11:00 Wolves - Everton
13:15 Aston Villa - Crystal Palace
15:30 Tottenham - Arsenal
18:00 Bournemouth - Leicester
Stöðutaflan England Premier league - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Arsenal 32 21 7 4 62 24 +38 70
2 Man City 31 19 7 5 63 28 +35 64
3 Man Utd 33 16 10 7 58 45 +13 58
4 Aston Villa 32 16 7 9 43 38 +5 55
5 Liverpool 32 15 7 10 52 42 +10 52
6 Chelsea 33 13 9 11 53 42 +11 48
7 Brentford 33 13 9 11 48 44 +4 48
8 Bournemouth 33 11 15 7 50 50 0 48
9 Brighton 33 12 11 10 45 39 +6 47
10 Everton 32 13 8 11 39 37 +2 47
11 Sunderland 32 12 10 10 33 36 -3 46
12 Fulham 33 13 6 14 43 46 -3 45
13 Crystal Palace 31 11 9 11 35 36 -1 42
14 Newcastle 33 12 6 15 46 49 -3 42
15 Leeds 33 9 12 12 42 49 -7 39
16 Nott. Forest 32 8 9 15 32 44 -12 33
17 West Ham 32 8 8 16 40 57 -17 32
18 Tottenham 33 7 10 16 42 53 -11 31
19 Burnley 32 4 8 20 33 63 -30 20
20 Wolves 33 3 8 22 24 61 -37 17
Slapp
banner
banner