12.07.26 - 16:54
Brynjar Ingi Erluson
2. deild: Þjálfarinn bjargaði stigi

Eggert Gunnþór skoraði jöfnunarmark KFA tuttugu mínútum fyrir leikslok

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Eggert Gunnþór skoraði jöfnunarmark KFA tuttugu mínútum fyrir leikslok

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Kári 2 - 2 KFA
1-0 Matthías Daði Gunnarsson ('35 )
1-1 Patrekur Aron Grétarsson ('58 )
2-1 Sigurjón Logi Bergþórsson ('65 )
2-2 Eggert Gunnþór Jónsson ('71 )
1-0 Matthías Daði Gunnarsson ('35 )
1-1 Patrekur Aron Grétarsson ('58 )
2-1 Sigurjón Logi Bergþórsson ('65 )
2-2 Eggert Gunnþór Jónsson ('71 )
Kári og KFA gerðu 2-2 jafntefli í 2. deild karla í Akraneshöllinni í dag.
Matthías Daði Gunnarsson braut ísinn fyrir Kára á 35. mínútu og heimamenn fóru með forystu inn í hálfleikinn.
Patrekur Aron Grétarsson jafnaði metin á 58. mínútu, en um sjö mínútum síðar komst Kári aftur yfir með marki Sigurjóns Loga Bergþórssonar.
KFA lét ekki deigan síga og jafnaði metin á ný tuttugu mínútum fyrir leikslok. Eggert Gunnþór Jónsson, spilandi þjálfari KFA, skoraði markið og bjargaði stigi fyrir sína menn.
Kári missti þar með af tækifæri til að komast upp í annað sætið og er í 4. sæti með 18 stig. KFA er í 8. sæti með 14 stig.

Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Haukar | 19 | +25 | 44 |
| 2 | Selfoss | 19 | +11 | 36 |
| 3 | Kári | 19 | +19 | 33 |
| 4 | Víkingur Ó. | 19 | -6 | 28 |
| 5 | KFA | 19 | +10 | 26 |
| 6 | Fjölnir | 19 | +2 | 25 |
| 7 | Magni | 19 | -10 | 25 |
| 8 | Kormákur/Hvöt | 19 | +5 | 24 |
| 9 | Dalvík/Reynir | 19 | -6 | 22 |
| 10 | Þróttur V. | 19 | -8 | 19 |
| 11 | KFG | 19 | -20 | 19 |
| 12 | Hvíti riddarinn | 19 | -22 | 16 |