Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 13. janúar 2022 17:00
Elvar Geir Magnússon
Coutinho blómstrar ef hann fær ást og ábyrgð
Coutinho á æfingasvæði Aston Villa.
Coutinho á æfingasvæði Aston Villa.
Mynd: Getty Images
Philippe Coutinho mun blómstra hjá Aston Villa, ef hann mun finna fyrir ást og ábyrgð. Þetta segir Brendan Rodgers, stjóri Leicester, sem fékk miðjumanninn til Liverpool á sínum tíma.

„Hann er magnaður leikmaður og frábær náungi. Ég fylgdist með honum sem ungum leikmanni og við vonuðumst eftir því að fá hann til Chelsea en það var þá þegar frágengið að hann færi til Inter," segir Rodgers.

„Hann er mjög auðmjúkur náungi og það kom mér mjög á óvart að hlutirnir gengu ekki upp hjá Barcelona. Ef ég hugsaði út í leikmann og félag sem pössuðu vel saman þá voru það hann og Barcelona."

„Stundum er umhverfið ekki það rétta og Philippe er leikmaður þar sem allt snýst um umhverfið. Ef hann finnur fyrir ást og ábyrgð þá mun hann blómstra. Ég er viss um að hann muni gera vel fyrir Steven Gerrard. Hann hefur sýnt í ensku úrvalsdeildinni að hann er toppleikmaður."
Athugasemdir
banner
banner
banner