Maður dagsins á HM - Starfsmaður flugfélags á sinn þátt í sögunni

Folarin Balogun skoraði tvö í mögnuðum sigri Bandaríkjanna

Mynd: EPA

Balogun skorar í nótt

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
HM hefur farið fjörlega af stað en Bandaríkjamenn byrjuðu mótið með því að pakka Paragvæ saman, 4-1, á SoFi-leikvanginum í Kaliforníu.
Varð bandarískur ríkisborgari fyrir tilviljun
Folarin Balogun fór mikinn í fyrsta leiknum. Hann skoraði tvö mörk og þá var eitt mark dæmt af honum vegna rangstöðu.
Balogun er 24 ára gamall sóknarmaður sem spilar með Mónakó í frönsku deildinni. Hann er uppalinn á Englandi og var í unglingaliðum Arsenal, en fékk fá tækifæri til að sanna sig þar.
Framherjinn lék með yngri landsliðum Englands en valdi að spila fyrir Bandaríkin árið 2023. Balogun fæddist í Bandaríkjunum, þó fyrir algjöra tilviljun.
Móðir hans var að ljúka fríi sínu í Bandaríkjunum og á leið aftur heim til Englands þegar flugfélagið neitaði að fljúga með hana ólétta aftur til heimalandsins. Starfsmaður flugfélagsins taldi hana vera með allt of stóran maga til að ferðast og fór því svo að hún fæddi hann í Brooklyn í New York-borg. Það skilaði honum bandarískum ríkisborgararétti og geta Bandaríkjamenn þakkað þessum starfsmanni hjá flugfélaginu fyrir þá gjöf.
Balogun og móðir hans eyddu næstu tveimur mánuðum í Bandaríkjunum, eða þar til móðir og barn voru talin nógu frísk til þess að ferðast.
Fyrstur til að skora tvö mörk síðan 1930
Bandaríkjamenn voru frábærir og skoruðu í fyrsta sinn fjögur mörk í sama leik á HM.
Balogun varð fyrsti Bandaríkjamaðurinn síðan á fyrsta heimsmeistaramótinu árið 1930 til að skora tvö mörk í sama leik á HM. Þá var þetta jafnframt stærsti sigur þjóðarinnar á HM einmitt frá því móti.

Folarin Balogun with a brace and a MOTM performance on his World Cup debut!
— Soar Africa! (@SSE_NGA) June 13, 2026
The striker was born in New York to an England-based Nigerian couple who were on holidays in the States at the time of his birth.
He was thus eligible to represent any of England, Nigeria or USA, but he… pic.twitter.com/SMi7QDeZo8

Balogun skorar í nótt

Mynd: EPA