Núna klukkan 19:15 hefst stórleikur Vals og Stjörnunnar á Origo-vellinum í sjöttu umferð Pepsi Max-deildar karla.
Valsmenn eru með níu stig eftir fimm umferðir á meðan Stjörnumenn eru með sex stig. Stjarnan á hins vegar þrjá leiki til góða þar sem að liðið þurfti að fara í tveggja vikna sóttkví vegna Covid-19 smits innan leikmannahópsins. Er þetta jafnframt þeirra fyrsti leikur eftir sóttkví. Byrjunarliðin er nú klár.

Valsmenn mæta með óbreytt lið frá 5-1 sigrinum gegn Víking R. í síðustu umferð. Stjörnumenn gera eina breytingu á liði sínu frá þeirra síðasta deildarleik gegn Fjölni þann 21. júní. Halldór Orri fær sér sæti á bekknum og Sölvi Snær Guðbjargarson kemur inn. Guðjón Pétur Lýðsson, nýjasti leikmaður Stjörnunnar, byrjar á bekknum. Liðin má sjá hér að neðan.
Lestu beina textalýsingu hér
Byrjunarlið Vals:
1. Hannes Þór Halldórsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
6. Sebastian Hedlund
7. Haukur Páll Sigurðsson (f)
9. Patrick Pedersen
10. Kristinn Freyr Sigurðsson
13. Rasmus Christiansen
14. Aron Bjarnason
19. Lasse Petry
24. Valgeir Lunddal Friðriksson
77. Kaj Leo í Bartalsstovu
Byrjunarlið Stjörnunnar:
1. Haraldur Björnsson (m)
2. Brynjar Gauti Guðjónsson
3. Jósef Kristinn Jósefsson
7. Guðjón Baldvinsson
9. Daníel Laxdal
10. Hilmar Árni Halldórsson
11. Þorsteinn Már Ragnarsson
12. Heiðar Ægisson
18. Sölvi Snær Guðbjargarson
20. Eyjólfur Héðinsson
29. Alex Þór Hauksson (f)
Lestu beina textalýsingu hér
Leikir kvöldsins:
18:00 KA-Fjölnir (Greifavöllurinn)
19:15 FH-Fylkir (Kaplakrikavöllur)
19:15 KR-Breiðablik (Meistaravellir)
19:15 Valur-Stjarnan (Origo völlurinn)
Stöðutaflan
L | U | J | T | ms: | mf: | mun | Stig | ||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 | 0 |
Athugasemdir