Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 13. október 2019 08:59
Magnús Már Einarsson
Aron Elís inn í landsliðshópinn
Icelandair
Aron Elís Þrándarson.
Aron Elís Þrándarson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Aron Elís Þrándarson, miðjumaður Álasund í Noregi, hefur verið kallaður inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Andorra í undankeppni EM annað kvöld.

Jóhann Berg Guðmundsson og Rúnar Már Sigurjónsson meiddust báðir gegn Frökkum í fyrrakvöld og verða fjarri góðu gamni á morgun.

Hinn 24 ára gamli Aron Elís hefur verið kallaður inn í hópinn en hann á fjóra A-landsleiki að baki.

Erik Hamren og Alfreð Finnbogason munu sitja fyrir svörum á fréttamannafundi klukkan 10:30 en Fótbolti.net mun að sjálfsögðu flytja fréttir af þeim fundi.

Athugasemdir
banner
banner
banner