Fotbolti.net
13.11.26 - 16:54
Ívan Guðjón Baldursson

Höfðu fyrst samband við Pochettino á sunnudaginn

Höfðu fyrst samband við Pochettino á sunnudaginn
Canon

Mynd: EPA

Mauricio Pochettino svaraði spurningum á fréttamannafundi bandaríska landsliðsins fyrir leiki gegn Haítí í úrslitakeppni Þjóðadeildarinnar.
Pochettino grét: Vanalega er þetta öfugt
TENGT EFNI

Pochettino grét: Vanalega er þetta öfugt

Leikirnir tveir gegn Haítí verða þeir síðustu með Pochettino við stjórnvölinn út af því að hann er búinn að samþykkja starf hjá Manchester United. Fregnirnar koma aðeins þremur mánuðum eftir að hann skrifaði undir fjögurra ára samning við bandaríska fótboltasambandið, sem gildir út HM 2030.

„Ég var mjög ánægður hjá bandaríska landsliðinu en við vitum að það er ekki oft sem maður fær tækifæri að taka við félagi eins og Manchester United. Þegar tækifærið býðst þá er mjög erfitt að hafna því," sagði Pochettino, sem var spurður út í samninginn.

„Þegar ég samþykkti að framlengja samninginn við landsliðið í ágúst þá gerði ég það til að hjálpa bandaríska fótboltasambandinu.

„Þetta gerðist allt mjög hratt. Ég heyrði ekki frá Man Utd fyrr en seinni part sunnudags og lét bandaríska fótboltasambandið strax vita."
Höfðu fyrst samband við Pochettino á sunnudaginn
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.