Fotbolti.net
14.01.13 - 08:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Lukaku og Dzeko frammi

Bosníumaðuinn Edin Dzeko heldur áfram að minna á sig.

Bosníumaðuinn Edin Dzeko heldur áfram að minna á sig.

Canon

Mynd: Getty Images

EIns og venjan er eftir hverja umferð í ensku úrvalsdeildinni birtum við úrvalslið vikunnar. Liðin helgi í enska var tíðindamikil enda stórleikir á dagskránni.

Að þessu sinni fáum við úrvalsliðið frá ESPN en stillt er upp í leikkerfið 3-4-3.


Markvörður: Julio Cesar - QPR
QPR getur þakkað Cesar fyrir að hafa fengið stig gegn Tottenham í hádegisleiknum á laugardag,

Varnarmaður: Ashley Williams - Swansea
Jafntefli gegn Everton staðreynd og Williams heldur áfram að leika vel á tímabilinu.

Varnarmaður: Fabricio Coloccini - Newcastle
Leikmaður sem Newcastle má ekki missa. Sýndi það skýrt og greinilega gegn Norwich.

Varnarmaður: Pablo Zabaleta - Manchester City
Argentínskir varnarmenn léku vel um helgina. Zabaleta reyndist Arsenal mjög erfiður viðureigna.

Miðjumaður: James Milner - Manchester City
Var sífellt að gegn Arsenal og braut ísinn í leiknum með frábæru skoti.

Miðjumaður: Michael Carrick - Manchester United
Var gríðarlega yfirvegaður á miðju United í góðum sigri gegn Liverpool.

Miðjumaður: Frank Lampard - Chelsea
Var besti maður vallarins í leiknum gegn Stoke.

Miðjumaður: Adam Johnson - Sunderland
Arkítektinn að flestum sóknum Sunderland í öruggum sigri á West Ham.

Sóknarmaður: Jimmy Kebe - Reading
Var í aðalhlutverkinu í magnaðri endurkomu Reading gegn West Brom. Þrjú mikilvæg stig til Reading í æsispennandi fallbaráttu deildarinnar.

Sóknarmaður: Edin Dzeko - Manchester City
Dzeko heldur áfram að njóta lífsins meðan Sergio Aguero er á meiðslalistanum.

Sóknarmaður: Romelu Lukaku - West Bromwich Albion
Átti sannkallaðan stórleik gegn Reading. Vonbrigði að það skilaði engu.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.