Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 14. janúar 2021 13:55
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Fjárhagsvandræði hjá Senica - Nói verður lánaður
Mynd: @Brano_Spanka / FK Senica
Nói Snæhólm Ólafsson er á mála hjá slóvakíska félaginu Senica. Fjallað var um Nóa og hans knattspyrnusögu síðasta haust en hann er lítt þekktur á Íslandi.

Viðalið við Nóa:
Úr East Grinstead Town og KR í slóvakísku úrvalsdeildina - Saga Nóa Ólafssonar (11. sept '20)

Senica hefur ekki gengið vel á leiktíðinni, liðið er í næstneðsta sæti deildarinnar sem stendur og lék liðið æfingaleik í gær. Nói var ekki í leikmannahópi liðsins og vakti það athygli fréttaritara.

Nói mun að öllum líkindum ekki klára tímabilið með Senica. Félagið á í fjárhagsörðugleikum og er vilji stjórnarmanna að senda sem flesta erlenda leikmenn á lán. Leit stendur yfir að nýju liði fyrir Nóa.

„Það er verið að skoða alla möguleika, það verður sennilega lið utan Slóvakíu," sagði Nói við Fótbolta.net.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner