Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 14. mars 2021 20:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liðsfélagar Gylfa hrósa honum mikið
Vítaspyrna á Anfield. Gylfi skoraði örugglega úr henni.
Vítaspyrna á Anfield. Gylfi skoraði örugglega úr henni.
Mynd: Getty Images
„Sá sem leggur mest á sig er Gylfi," sagði Mason Holgate, varnarmaður Everton, í hlaðvarpsþætti RIo Ferdinand á dögunum.

Hann segir að Gylfi sé sá sem leggur mest á sig á æfingasvæðinu.

„Það kemur fólki á óvart. Allt sem hann gerir er til að verða besti leikmaðurinn sem hann mögulega getur orðið. Hann er einn besti atvinnumaður sem hef umgengist. Hann er alltaf að taka aukaæfingar í öllu."

Stuðningsmenn Everton eru margir hverjir ekki mjög hrifnir af Gylfa, sem hefur átt mjög gott tímabil. Það er hins vegar ljóst að liðsfélagar hans hafa mikið álit á honum.

„Hann er einn sá besti sem ég hef séð í að klára færi," sagði varnarmaðurinn Ben Godfrey.

„Hann vinnur svo mikið í því að það kemur ekki á óvart," sagði Holgate.

Sjá einnig:
Myndi setja Gylfa á vítapunktinn ef lífið lægi við - Gerir gæfumuninn


Athugasemdir
banner
banner
banner