Haaland, Toney, Gomes, Diomande, Gyokeres, Southgate, O'Neil, De Zerbi og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 14. júní 2021 23:05
Brynjar Ingi Erluson
4. deild: Sex marka jafntefli hjá Ísbirninum og RB
Ísbjörninn gerði 3-3 jafntefli við RB
Ísbjörninn gerði 3-3 jafntefli við RB
Mynd: Heimasíða Ísbjarnarins
Ísbjörninn 3 - 3 RB
0-1 Daníel Bergmann Róbertsson ('4 )
0-2 Daníel Bergmann Róbertsson ('35 )
1-2 Milos Bursac ('45 )
2-2 Milos Bursac ('47 )
3-2 Milos Bursac ('82 )
3-3 Hafþór Logi Bjarnason ('88 )

Ísbjörninn og RB gerðu 3-3 jafntefli í A-riðli 4. deildar karla í kvöld en Milos Bursac gerði sér lítið fyrir og skoraði þrennu fyrir Ísbjörninn.

Daníel Bergmann Róbertsson skoraði fyrstu tvö mörk leiksins fyrir RB en undir lok fyrri hálfleiks minnkaði Bursac muninn fyrir Ísbjörninn.

Hann jafnaði svo metin í upphafi síðari hálfleiks áður en hann fullkomnaði þrennu sína á 82. mínútu.

Hafþór Logi Bjarnason náði í jöfnunarmark tveimur mínútum fyrir leikslok og lokatölur því 3-3.

RB er í 2. sæti með 10 stig en Ísbjörninn með 9 stig í 3. sæti.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner