Næsta frí þegar tímabilið klárast
„Þetta voru fjórir dagar sem strákarnir fengu í frí. Það voru svo frjálsar æfingar og prógramm fyrir þá sem hafa verið meiddir. Þetta var gott fyrir hausinn, aðeins að kúpla sig út, strákarnir hafa verið alveg á fullu síðan í janúar, bara einu sinni náð tveggja daga fríi held ég," segir Srdjan Tufegdzic, þjálfari Vals, við Fótbolta.net en Besta deildin fer aftur af stað í kvöld eftir landsleikjahlé með leik Stjörnunnar og Vals.
„Erlendu leikmennirnir gátu notað tækifærið og farið heim. Núna tekur við leikjatörn, erum áfram í bikarnum og svo koma Evrópuleikir. Ég sagði við strákana að næsta frí yrði í október þegar þetta klárast. Ég fann það sjálfur líka, það var smá spennufall, held þetta hafi verið gott fyrir alla," bætir Túfa við.
„Erlendu leikmennirnir gátu notað tækifærið og farið heim. Núna tekur við leikjatörn, erum áfram í bikarnum og svo koma Evrópuleikir. Ég sagði við strákana að næsta frí yrði í október þegar þetta klárast. Ég fann það sjálfur líka, það var smá spennufall, held þetta hafi verið gott fyrir alla," bætir Túfa við.
En hvernig er það með þjálfara, ná þeir að sleppa því alveg að hugsa um næsta leik í nokkra daga?
„Það er aldrei frí fyrir þjálfara, eina alvöru fríið eru fljótlega eftir að tímabilið klárast. Þá eru teknir einhverjir fundir og svo reynir maður alveg að kúpla sig út í tíu daga með fjölskyldunni."
„Kannski ná eldri þjálfarar betur að kúpla sig betur og lengur út. Maður var eitthvað að horfa til baka á fyrstu tíu leikina, skoða klippur sem gætu nýst í framhaldinu. Það er alltaf eitthvað."
Á fínum stað
Talandi um byrjunina á tímabilinu, ertu sáttur?
„Heilt yfir held ég að við séum á fínum stað, tíu leikir búnir í deildinni og tveir í bikar. Það er alltaf hægt og við tölum alltaf hreint út við leikmenn, það voru hlutir sem við gátum gert betur, en heilt yfir þá held ég að við séum á fínum stað. Við erum áfram í bikar og erum við toppinn. Við verðum bara að halda áfram."
„Við höfum spilað alla þessa leiki að meðaltali án 3-4 leikmanna, engra smá leikmanna, leikmanna sem hafa verið að byrja leiki. Freddi (Frederik Schram) markmaður kemur t.d. í sjöttu umferð. Heilt yfir erum við ánægðir, þurfum bara að bæta við og bæta okkur."
Óútreiknanlegir Stjörnumenn
Hvernig líst þjálfaranum á leik á móti Stjörnunni?
„Bara vel, ég er meðvitaður um að þetta verður hörku leikur. Þetta er flott lið, á góðum aldri, og með mikinn kraft; ferskleiki og hraði í liðinu. Þeir spila yfirleitt betur heima og það bíður okkur hörku leikur."
„Mér finnst þeir spila aðeins öðruvísi í ár en í fyrra, þá fannst mér þeir mikið byggja á því að halda í boltann. Núna, inn á milli, finnst mér þeir vera beinskeyttari; langir boltar fram á Emil (Atlason), Örvar (Eggertsson) og Benó (Benedikt Warén). Það er aðeins öðruvísi, hvernig ég upplifi það að minnsta kosti, nálgun á hlutina. Við höfum stúderað þá vel og höfðum góðan tíma til að fara yfir hvað við þurfum að stoppa og hvaða veikleika þeir hafa sýnt hingað til - og hvernig við viljum reyna nota þá. Við erum klárir í slaginn."
„Ég reyni alltaf að sjá 3-4 leikina á undan hjá liðunum sem við mætum, þjálfarateymið er svo með ákveðin atriði sem við sýnum strákunum. Ég reyni að sjá eins mikið og ég get með því að fara sjálfur á völlinn. Síðustu fjórir leikir hjá Stjörnunni eru fjórir mismunandi leikir, pínu óútreiknanlegir," segir Túfa.
Leikurinn í kvöld hefst klukkan 19:15 og fer fram á Samsungvellinum í Garðabæ.
Athugasemdir