Maður dagsins á HM - Fyrrum lærisveinn Heimis í essinu sínu

Mahmud Abunada var frábær gegn Sviss

Mynd: EPA

Abunada í leiknum í gær

Mynd: EPA

Mahmud Abunada var frábær gegn Sviss

Mynd: EPA

Orkusalan og Fótbolti.net velja mann dagsins á HM á hverjum degi á meðan mótið er í gangi í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada.
Maður dagsins að þessu sinni er markvörðurinn Mahmud Abunada, sem átti stórleik í marki Katar þegar liðið gerði óvænt 1-1 jafntefli við Sviss í B-riðli mótsins.
Abunada er ekki stórt nafn í fótboltaheiminum og fáir vissu hver hann var fyrir mót.
Eyjamaðurinn Heimir Hallgrímsson og þjálfarateymi hans hjá Al Arabi þekkja þó vel til hans, enda spilaði hann undir stjórn Heimis frá 2019 til 2021 og var aðalmarkvörður liðsins á síðasta tímabili hans þar.
Í dag spilar hann með Al Rayyan í heimalandinu, þar sem hann var valinn besti markvörður tímabilsins og í lið ársins.
Abunada er 26 ára gamall og fæddur í Doha í Katar, en hann er ættaður frá Palestínu og hefur styrkt fórnarlömb stríðsins á Gaza. Það gerði hann meðal annars nú síðast þegar Katar tryggði sér sæti á heimsmeistaramótinu.
Markvörðurinn var magnaður gegn Sviss og átti margar stórar vörslur í leiknum, þá sérstaklega í fyrri hálfleik gegn sterku liði Sviss.
Aðrir sem komu til greina
Aðrir sem komu til greina í valinu á manni dagsins voru Patrick Beach hjá Ástralíu, sem átti átta vörslur í 2-0 sigrinum á Tyrklandi. Það eru flestar vörslur sem ástralskur markvörður hefur átt í einum leik á mótinu.
Ayyoub Bouaddi, 18 ára miðjumaður Marokkó, átti mjög þroskaða frammistöðu í 1-1 jafnteflinu gegn Brasilíu og gætu Frakkar séð á eftir honum, en hann er fæddur og uppalinn í Frakklandi en ákvað að velja Marokkó stuttu fyrir HM. Þetta er leikmaður sem vert er að fylgjast með í framtíðinniþ John McGinn, markaskorari Skota í 1-0 sigrinum á Haítí, var einnig líflegur.