Rúnar Páll: Halli er skemmtilegur karakter
Auglýsing

Rúnar Páll Sigmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Rúnar Páll Sigmundsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Rúnar Páll Sigmundsson, þjálfari Stjörnunnar, landaði þremur stigum gegn Víkingi Ólafsvík í kvöld. Stjarnan er í öðru sæti, sjö stigum á eftir toppliði Vals.
„Við vorum talsvert hættulegri en Víkingar eru skeinuhættir. 1-0 er erfið staða. Þeir fengu dauðafæri í stöðunni 1-0 og fengu svo færi í stöðunni 3-0. Meira var það ekki minnir mig,\" segir Rúnar Páll.
„Það var ótrúlega sætt að ná öðru markinu, það var léttir.\"
Haraldur Björnsson varði vel á mikilvægum tímapunkti í stöðunni 1-0.
„Halli hefur verið drullugóður fyrir okkur í sumar. Vonandi heldur hann því áfram út tímabilið. Halli er skemmtilegur karakter.\"
Rúnar býst ekki við því að Valur misstígi sig en viðtalið má sjá í heild í sjónvarpinu hér að ofan.