Fotbolti.net
14.11.26 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Þjóðadeildin í dag - Ronaldo heiðraður í Braga

Portúgal tekur á móti Danmörku

Portúgal tekur á móti Danmörku

Canon

Mynd: EPA

Spilað er í A- og B-deild Þjóðadeildarinnar í dag og kvöld.
Í A-deildinni er spilað í D-riðli en Noregur mætir Wales klukkan 17:00 á meðan Portúgal, sem er komið í átta liða úrslit, spilar við Danmörku.

Portúgalska sambandið mun heiðra Cristiano Ronaldo sem lagði landsliðsskóna á hilluna á dögunum, en það er ekkert víst að hann muni mæta og þá sérstaklega miðað við hvernig landsliðsferli hans lauk.

Baráttan er hörð um annað sætið, en Danmörk er í öðru sæti með 6 stig svo koma Wales og Noregur í þriðja og fjórða með 3 stig.

Leikir dagsins:

Þjóðadeildin A
17:00 Noregur - Wales
19:45 Portúgal - Danmörk

Þjóðadeildin B
14:00 Kósóvó - Ísrael
17:00 Georgía - Ungverjaland
19:45 Austurríki - Írland
19:45 Norður Írland - Úkraína
19:45 Rúmenía - Pólland
19:45 Svíþjóð - Bosnía
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.