Fotbolti.net
15.01.14 - 11:45
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Úrvalslið vikunnar í enska - Stórhættuleg sókn

Adam Jonson sér til þess að áhorfendur séu vel með á nótunum og viti að hann hafi skorað þrennu.

Adam Jonson sér til þess að áhorfendur séu vel með á nótunum og viti að hann hafi skorað þrennu.

Canon

Mynd: Getty Images

Hér að neðan má sjá úrvalslið vikunnar í enska boltanum en síðustu umferð úrvalsdeildarinnar lauk á mánudagskvöld þegar Arsenal vann Aston Villa.

Það er Goal.com sem á úrvalsliðið að þessu sinni en í fyrsta sinn í sögu úrvalsdeildarinnar unnu öll efstu sjö liðin!

Arsenal á flesta fulltrúa, þrjá talsins, þar á meðal miðvarðaparið.


Artur Boruc stendur í rammanum eftir frábæra frammistöðu gegn West Brom á laugardaginn. Hann bjargaði Southampton með hreint stórkostlegri vörslu í lokin.

Nathaniel Clyne kemst í úrvalsliðið í fyrsta sinn á þessari leiktíð og í hjarta varnarinnar eru hinir mögnuðu miðverðir Arsenal, Per Mertesacker og Laurent Koscielny sem hafa átt frábært timabil. Aleksandar Kolarov var besti leikmaður Manchester City gegn Newcastle og fær sæti í vinstri bakverðinum.

Mark Noble og Jack Wilshere eru saman á miðjunni. Noble innsiglaði sigur gegn Cardiff City á laugardag og Wilshere skoraði og átti stoðsendingu með 17 sekúndna millibili gegn Aston Villa.

Það er blásið til sóknar í úrvalsliðinu og þar má finna Eden Hazard sem skoraði flott mark eftir einstaklingsframtak. Adnan Januzaj er í holunni en þessi strákur hefur verið ljósið í myrkrinu hjá Englandsmeisturunum.

Adam Johnson er að sjálfsögðu í liðinu eftir að hafa skorað þrennu í 4-1 sigri Sunderland gegn Fulham. Síðastur en ekki sístur er Luis Suarez en það heyrir til undantekninga ef þessi stórkostlegi leikmaður er ekki í úrvalsliðinu. Liðsfélagi hans, Raheem Sterling, var nálægt því að komast í liðið og er fyrsti varamaður inn.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.