Milan 3 - 0 Spal
1-0 Krzysztof Piatek ('20 )
2-0 Samu Castillejo ('44 )
3-0 Theo Hernandez ('66 )
1-0 Krzysztof Piatek ('20 )
2-0 Samu Castillejo ('44 )
3-0 Theo Hernandez ('66 )
AC Milan tók á móti Spal í 16-liða úrslitum ítölsku bikarkeppninnar í dag. Krzysztof Piatek hefur fengið aukna samkeppni um framherjastöðuna hjá Milan eftir komu Zlatan Ibrahimovic.
Piatek fékk tækifærið í framlínunni í dag og nýtti það vel. Hann kom Milan yfir eftir hraða sókn á 20. mínútu og lagði svo boltann á Samu Castillejo skömmu fyrir hálfleik. Stoðsendingin sú fyrsta hjá Piatek í treyju Milan.
Theo Hernandez innsiglaði svo sigurinn þegar hann komst inn í sendingu við miðlínu og keyrði upp völlinn. Bakvörðurinn lét svo vaða og skotið óverjandi fyrir markvörð Spal.
AC Milan er því komið áfram í 8-liða úrslit keppninnar. Í kvöld fer fram leikur Juventus og Udinese.
Athugasemdir