Fotbolti.net
15.04.13 - 10:00
Magnús Már Einarsson
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Þrír frá Manchester United

Rooney spilaði á miðjunni í gær.

Rooney spilaði á miðjunni í gær.

Canon

Mynd: Getty Images

Sjö leikir fóru fram í ensku úrvalsdeildinni sem og undanúrslitaleikirnir í enska bikarnum. Garth Crooks hjá BBC hefur valið lið vikunnar eftir þessa leiki og það má sjá hér að neðan.


Markvörður: Alex McCarthy (Reading)
McCarthy átti einn besta ef ekki besta leik lífs síns þegar Reading gerði markalaust jafntefli við Liverpool.

Hægri bakvörður: Matthew Lowton (Aston Villa)
Lowton er í lið vikunnar aðra vikuna í röð eftir fína frammistöðu gegn Fulham.

Miðvörður: Rio Ferdinand (Manchester United)
Ferdinand skilaði fínu dagsverki í 2-0 sigri Manchester United á Stoke.

Miðvörður: Phil Jones (Manchester United)
Jones var öflugur líkt og Ferdinand og allt annað að sjá hann í gær eftir frammistöðuna gegn Manchester City.

Vinstri bakvörður: Nathaniel Clyne (Southampton)
Clyne hefur leikið alla leiki Southampton í vetur og verið vaxandi.

Miðjumaður: Charles N\'Zogbia (Aston Villa)
N\'Zogbia skoraði fallegt mark gegn Fulham.

Miðjumaður: Yaya Toure (Manchester City)
Leikmenn Chelsea réðu ekkert við Toure í undanúrslitunum í gær.

Miðjumaður: Wayne Rooney (Manchester United)
Rooney lék á miðjunni gegn Stoke í gær og átti flottan leik.

Framherji: Victor Anichebe (Everton)
Clint Hill og Christopher Samba varnarmenn QPR réðu ekkert við styrk Anichebe á laugardag.

Framherji: Andy Carroll (West Ham)
Carroll skoraði og átti flottan leik gegn Southampton.

Framherji: Stephane Sessegnon (Sunderland)
Sessegnon gaf tóninn í 3-0 sigri Sunderland gegn nágrönnunum í Newcastle með því að skora fyrsta markið.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Yaya Toure og félagar eru komnir í bikarúrslit.

Yaya Toure og félagar eru komnir í bikarúrslit.

Canon

Mynd: Getty Images

Stephane Sessegnon skoraði gegn Newcastle.

Stephane Sessegnon skoraði gegn Newcastle.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.