Fotbolti.net
15.05.13 - 11:00
Elvar Geir Magnússon
Í samstarfi við styrktaraðila

Lið vikunnar í enska - Lampard fyrirliði

Frank Lampard.

Frank Lampard.

Canon

Mynd: Getty Images

Theo Walcott og Santi Cazorla eru í Domino\'s liði umferðarinnar í enska boltanum en nú er aðeins ein umferð eftir. Walcott og Cazorla voru báðir magnaðir þegar Arsenal vann Wigan 4-1 í gær en eftir þau úrslit féll Wigan formlega.

Þjálfari úrvalsliðsins er að sjálfsögðu Sir Alex Ferguson og Frank Lampard er með fyrirliðabandið.


Markvörður: Alex McCarthy - Reading
Sýndi flott tilþrif fyrir fallið lið Reading gegn Manchester City. Kom í veg fyrir stærra tap.

Hægri bakvörður: Nathaniel Clyne - Southampton
Átti góðan leik í 1-1 jafntefli gegn Sunderland.

Miðvörður: Michael Dawson - Tottenham
Traustur í nauðsynlegum sigri gegn Stoke.

Miðvörður: Fabricio Coloccini - Newcastle
Newcastle tryggði sæti sitt í deildinni með sigri gegn QPR.

Vinstri bakvörður: Danny Rose - Sunderland
Fékk átta í einkunn frá Goal.com fyrir frammistöðu sína.

Hægri kantur: Philippe Coutinho - Liverpool
Nýtt uppáhald hjá stuðningsmönnum Liverpool. Fær pláss á hægri kanti í úrvalsliði umferðarinnar.

Miðjumaður: Santi Cazorla - Arsenal
Var á eldi gegn Wigan og lagði upp eins og enginn væri morgundagurinn.

Miðjumaður: Frank Lampard - Chelsea
Skoraði tvö mörk gegn Aston Villa og varð markahæsti leikmaður Chelsea frá upphafi.

Vinstri kantur: Kevin Mirallas - Everton
Skoraði tvö mörk og hjálpaði Everton að leggja West Ham í síðasta heimaleik liðsins undir stjórn David Moyes.

Sóknarmaður: Daniel Sturridge - Liverpool
Gekk frá Fulham með flottri þrennu um síðustu helgi.

Sóknarmaður: Theo Walcott - Arsenal
Walcott fékk níu í einkunn gegn Wigan.

Sjá einnig:
Fyrri úrvalslið í enska
Daniel Sturridge.

Daniel Sturridge.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.