Man Utd skoðar aðra kosti - Arsenal heldur áfram að reyna við Gyökers - Calhanoglu á förum frá Inter?
   sun 15. júní 2025 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Viðtal
Sölvi ekki alveg til í KR óreiðuna - „Hrikalega skemmtilegt að horfa á þessa leiki"
'Þetta er búin að vera strembin byrjun á tímabilinu, með öðruvísi undirbúningstímabil og tímabilið í fyrra situr ennþá lúmskt í manni.'
'Þetta er búin að vera strembin byrjun á tímabilinu, með öðruvísi undirbúningstímabil og tímabilið í fyrra situr ennþá lúmskt í manni.'
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marki fagnað í Sambandsdeidlarumspilinu í febrúar.
Marki fagnað í Sambandsdeidlarumspilinu í febrúar.
Mynd: Víkingur
Sveinn Gísli er mættur aftur.
Sveinn Gísli er mættur aftur.
Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
KR er markahæsta lið deildarinnar.
KR er markahæsta lið deildarinnar.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sölvi Geir Ottesen og hans lærisveinar í Víkingi taka á móti KR í lokaleik 11. umferðar Bestu deildarinnar annað kvöld.

Leikurinn hefst klukkan 19:15 og fer fram á Víkingsvelli. Fótbolti.net ræddi við þjálfara toppliðsins í aðdraganda leiksins.

„Síðasta tímabil situr ennþá lúmskt í manni"
„Það mjög gaman að þetta sé að fara af stað aftur, þetta var kærkomið frí, en fínt að vera byrjaðir aftur. Ég fór aðeins í sumarbústað, kúplaði mig frá öllu. Það var mjög notalegt," segir Sölvi Geir.

Nær maður alveg að kúpla sig frá, eða er maður að hugsa um KR aðeins?

„Maður nær ekki alveg að kúpla sig út, það var dálítið strembið að ná því, en svona mestmegnis. Maður hafði gott af þessu og leikmenn höfðu gott af því að fá frí. Þetta er búin að vera strembin byrjun á tímabilinu, með öðruvísi undirbúningstímabil og tímabilið í fyrra situr ennþá lúmskt í manni. Vonandi hefur þetta frí gefið leikmönnum og starfsfólki kraft fyrir komandi verkefni og törn."

Skemmtilegur fótbolti hjá KR
Hvernig leggst leikurinn gegn KR í Sölva?

„Hann leggst mjög vel í mig, eins og allir leikir, spennandi leikur. Þetta var kannski full langt frí upp á það að gera að geta ekki svarað fyrir síðasta leik strax (tap gegn Breiðabliki), en við erum peppaðir fyrir þessum. Það er krefjandi að mæta KR-ingum, ég held að flest lið hafa lent í því. Þetta er skemmtilegur fótbolti sem KR spilar, en að sama skapi eru þetta mjög opnir og kaotískir leikir. Hvort viljum við taka þátt í kaotíkinni eða viljum við ná meiri stjórn á leiknum?"

Vilja stjórna leiknum betur
Ég segi að þið farið bara og verðið með í þessu...

„Það vilja það allir," segir Sölvi og hlær. „Það er náttúrulega hrikalega skemmtilegt að horfa á þessa leiki, þvílíkt opnir leikir fram og til baka. Við viljum blanda þessu dálítið, viljum geta stjórnað leiknum betur heldur en KR-ingar vilja kannski gera."

Áskorun að mæta KR
Er eitthvað sérstakt í þeirra leik sem þið viljið algjörlega taka frá þeim?

„Að sjálfsögðu, þeir hafa sýnt að þeir hafa á löngum köflum náð að halda mikið í boltann, eru með hæsta possession í deildinni, í kringum 65% sem er rosalega hátt. Svo eru þeir með mikið af skotum og færum. Þetta eru hlutir sem þú vilt stoppa, þeir hafa komið sér í margar góðar stöður og eru líklegir til þess að skora; hafa skorað flest mörk í deildinni, búnir að skapa hæsta xG og eru rosalega hættulegir fram á við. Þeir taka miklar áhættur eins og sést með mörk fengin á sig og xG á móti sér, þeir eru við toppinn þar. Það er áskorun að mæta KR-ingum, liði sem tekur rosalega mikið af áhættum."

Sveinn Gísli klár og Pablo færist nær
Sölvi segir að Sveinn Gísli Þorkelsson sé klár í slaginn. „Hann er búinn að vera æfa með okkur, hann er búinn að ná sér af meiðslunum. Kalii (Karl Friðleifur Gunnarsson) er kominn á fullt aftur og Pablo (Punyed) er byrjaður að vera með í 'contacti'. Það eru allir heilir fyrir utan Aron (Elís Þrándarson) sem er með slitið krossband. Fyrir utan hann eru allir í góðu standi," segir Sölvi sem verður án Tarik Ibrahimagic á morgun en sá danski tekur út leikbann gegn KR.

Fréttirnar af Pablo eru mjög jákvæðar en hann sleit krossband í leik með Víkingi síðasta sumar.
Athugasemdir
banner