Fotbolti.net
15.06.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Southgate hafnaði fjölmiðlastarfi á HM

Southgate hafnaði fjölmiðlastarfi á HM
Canon

Mynd: EPA

Gareth Southgate, fyrrum landsliðsmaður og þjálfari Englands, hafnaði tækifærinu að starfa sem fótboltasérfræðingur á HM til að trufla ekki landsliðið.
Southgate þjálfaði enska landsliðið frá 2016 til 2024 og kom liðinu tvisvar sinnum í úrslitaleik Evrópumótsins en tapaði þar fyrst gegn Ítalíu eftir vítaspyrnukeppni og svo gegn Spáni.

Besti árangur Englands á heimsmeistaramóti undir stjórn Southgate kom 2018, þegar liðið endaði í fjórða sæti eftir tap gegn Króatíu í undanúrslitum og Belgíu í bronsleiknum.

„Ég hef verið á síðustu sjö heimsmeistaramótum ýmist sem leikmaður, fótboltasérfræðingur, njósnari og svo sem þjálfari," sagði Southgate meðal annars í myndbandi sem hann birti á Instagram aðgangi sínum.

„Þetta árið tók ég meðvitaða ákvörðun um að starfa ekki í kringum heimsmeistaramótið sem fótboltasérfræðingur, ég taldi það ekki vera hjálpsamlegt fyrir strákana í landsliðinu. Ég vil ekki að það sé snúið út úr einhverju sem ég segi eða það notað gegn leikmönnum á fréttamannafundum, þannig það er best fyrir mig að vera ekki að trufla."

England byrjar heimsmeistaramótið gegn Króatíu á miðvikudagskvöldið, á þjóðhátíðardegi Íslendinga.

„Ég vil óska strákunum góðs gengis og ég veit að þeir munu mæta inn í þetta mót með góða reynslu á bakinu eftir síðustu útsláttarkeppnir sem þeir tóku þátt í. Þeir hafa komist svo nálægt því að vinna að þeir eru hungraðari en nokkru sinni fyrr. Þeir eru tilbúnir til þess að vinna HM."
Southgate hafnaði fjölmiðlastarfi á HM
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.