Fotbolti.net
04.07.26 - 18:31
Ívar Björgvinsson

Fyrirliði Vestra um Evrópudeildina: Þurfum sennilega að vera svolítið heppnir

Auglýsing
Fyrirliði Vestra um Evrópudeildina: Þurfum sennilega að vera svolítið heppnir
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin

Vestri gerði markalaust jafntefli við Grindavík suður með sjó í 12. umferð Lengjudeildar karla. Leikurinn var sá síðasti fyrir Evrópuævintýri Vestra en næstkomandi fimmtudag spilar liðið við Qarabag úti í Aserbaídsjan. Fótbolti.net ræddi við Elmar Atla, fyrirliða Vestra, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Grindavík 0 - 0 Vestri

„Mér fannst við betri í dag en það er erfitt að skora mörk og það reyndist þannig í dag. Ég er ánægður með strákana og þeir börðust virkilega vel fyrir þessu stigi en þau hefðu mátt vera þrjú.''

Elmar var á varamannabekknum og sat þar allan leikinn, en Badu gerði slatta af breytingum frá liðinu sem náði í jafntefli gegn Þrótti í síðustu umferð. Var sú ákvörðun tekin með Evrópuleikina í huga?

„Já, það er búið að vera mikið álag á mörgum leikmönnum í liðinu okkar og þjálfararnir meta það þannig að hvíla mig í dag væri rétt ákvörðun og ég virði það.''

Hvernig er tilfinningin fyrir Evrópuverkefninu?

„Maður er ekki alveg búinn að hella sér yfir þetta, það er kannski óhætt að gera það núna fyrst að það sé næsti leikur en við erum búnir að reyna að vera bara með fullan fókus við leikina í deildinni. Ég hugsa að við förum bara yfir planið strax í fyrramálið og hvernig sá leikur verður settur upp. Maður er fyrst og fremst bara ógeðslega gaman að taka þátt í þessu með uppeldisfélaginu, það eru forréttindi.''

Qarabag er risa klúbbur sem gerði meðal annars jafntefli við Chelsea í Meistaradeildinni á síðustu leiktíð.

„Það verður hrikalega gaman og spennandi að fá að spila við svona stórt lið. Maður er ekki alveg búinn að leyfa sér að verða spenntur fyrir þessu fyrr en kannski núna.''

Það er ljóst að Vestri þarf að eiga ansi góðan leik til þess að gefa Qarabag alvöru leik.

„Við þurfum að eiga okkar allra besta dag og sennilega vera svolítið heppnir líka til að ná að keyra þetta í gegn. Við förum þangað brattir og pressulausir þannig að það verður bara stuð.''

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.