Fotbolti.net
15.08.17 - 23:08
Lilja Dögg Valþórsdóttir

Kalli: Eru með sterkt taktískt skipulag

Auglýsing
Jóhannes Karl ásamt aðstoðarþjálfara sínu, Agli Atlasyni

Jóhannes Karl ásamt aðstoðarþjálfara sínu, Agli Atlasyni

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hertz
Jóhannes Karl Sigursteinsson, þjálfari HK/Víkings, var að vonum ósáttur með leik síns liðs í kvöld þegar þær töpuðu toppslagnum gegn Þrótti R. Við ræddum við hann um leikinn, muninn á þessum leik og fyrri leiknum gegn Þrótti á þessu tímabili, dómgæsluna og möguleikana í toppbaráttunni þegar 4 umferðir eru eftir.

“Já, mjög ósáttur. Þetta var ekki það sem við ætluðum okkur. Við komum hingað til að sækja þrjú stig en við vorum býsna langt frá því,” sagði Kalli um leikinn í kvöld.
HK/Víkingur vann Þrótt 2-0 í fyrri leik liðanna á tímabilinu en hver fannst Kalla helsti munurinn á leikjunum vera?

“Þetta Þróttaralið er búið að skóla sig betur saman. Þessi leikur þróast þannig að þær fá mark snemma í leiknum sem hentar þeim feikilega vel. Þær vilja liggja til baka. Þær eru góðar og sterkar varnarlega. Við gerum klaufaleg mistök og gefum þeim 1-0 markið, eða gefum þeim ekkert, þær klára það vel. En það voru gæði í ákveðnum leikmönnum sem munar um. En eins og leikurinn þróast þá er kannski munurinn á fyrri og seinni leiknum sá að þær komust aldrei í þessa 1-0 stöðu. Og um leið og Þróttur kemst í 1-0 stöðuna þá eru þær með feikilega sterkt taktískt skipulag sem er erfitt að verjast.”

Helduru að þið hafið spilað ykkur útúr toppbaráttunni með þessu tapi?

“Númer 1, 2 og 3 er að við þurfum að horfa inná við því að við þurfum að klára þessa 4 leiki sem við eigum eftir og þá þurfum við að laga ýmislegt frá leiknum í kvöld.”

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.