Mikið umtal er í kringum rauða spjaldið sem Elfar Freyr Helgason fékk í undanúrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í kvöld.
Elfar var rekinn af velli undir lok leiksins og brást ekki sérlega vel við. Hann reif rauða spjaldið af Þorvaldi Árnasyni dómara og henti því í grasið.
Meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið eru Gary Martin, sóknarmaður ÍBV, og Steven Lennon, sóknarmaður FH.
„Ef þú ætlar í stríð ... þá tekurðu Elfar Freyr með þér. Hann myndi tækla ömmu sína," skrifaði Gary og var Steven ekki lengi að svara.
„Hann myndi þó líklega skjóta sjálfan sig eða sinn eigin her áður en það kæmi að því..." svaraði Steven sem mun keppa við Víking R. í úrslitaleik bikarsins.
Gary kom Elfari þó til varnar og talaði um hann sem einn besta og harðasta varnarmann deildarinnar.
„Eini varnarmaðurinn á Íslandi sem gerir mig skíthræddan .. líklega ástæðan fyrir því að ég hef ekki skorað gegn Breiðablik í deildinni," sagði Gary.
If your going to war ... your taking elfar frey with you 😂
— Gaz Martin (@G9bov) August 15, 2019
He would tackle his own grandma 😂😂
He would prob shoot himself or his own army before that tho...
— StevenLennon (@StevenLennon_7) August 15, 2019
😂😂😂😂 only defender in Iceland who scares the living daylights out of me .. probs why I’ve never scored against breidblick in the league 😭😭😭
— Gaz Martin (@G9bov) August 15, 2019
Athugasemdir