Enski boltinn fer á fullt í dag en fimm leikir eru á dagskrá yfir daginn og er leikið frá hádegi alveg til kvölds.
Dagurinn byrjar með viðureign Wolves og West Brom klukkan 12:30 og í kjölfarið eru tveir leikir í boði klukkan 15:00.
Fulham fær Chelsea í heimsókn í næst síðasta leiknum og mun freista þess að fá eitthvað úr þeim leik líkt og í þeim síðasta gegn Tottenham.
Athyglisverðasti leikurinn hefst svo mögulega klukkan 20:00 er Leicester City og Southampton mætast á King Power.
Southampton getur jafnað Leicester að stigum með sigri á útivelli en liðin eru þessa stundina í sjöunda og fjórða sæti.
Laugardagur:
12:30 Wolves - West Brom
15:00 West Ham - Burnley
15:00 Leeds - Brighton
17:30 Fulham - Chelsea
20:00 Leicester - Southampton
Athugasemdir