Fotbolti.net
01.10.26 - 13:04
Kári Snorrason

Útboðið ólögmætt og tafir á framkvæmdum við Kórinn - „Mikil vonbrigði“

HK mun spila áfram inni í Kórnum næstu árin.

HK mun spila áfram inni í Kórnum næstu árin.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Lengjudeildin
Útboð vegna nýrrar stúku HK við Kórinn hefur verið metið ólögmætt af kærunefnd útboðsmála og hefur útboðið nú verið fellt úr gildi.

Þetta kemur fram í skrifum Jónas Más Torfasonar, bæjarfulltrúar Kópavogsbæjar og oddvita Samfylkingarinnar í Kópavogi, á Facebook.

„Þetta eru mikil vonbrigði þó maður hafi búist við þessu þegar þetta fór fyrir kærunefndina,“ segir Sigurjón Hallgrímsson, formaður fótboltadeildar HK, í samtali við Fótbolta.net.

Fyrirhugað var að reisa 1200 manna stúku með þjónustubyggingu á tveimur hæðum, upphitaðan gervigrasvöll og flóðlýsingu. Sigurjón sagði í viðtali við Fótbolta.net fyrir tæpu ári síðan að félagið vonaðist til að leika utandyra 2028.

Útboðið, sem fór fram síðasta vetur, var metið ógilt þar sem kærunefnd taldi að Kópavogsbær hefði ekki staðið rétt að mati á tilboðum verktakafyrirtækjanna Ístaks og ÞG verktaka.
HK stefnir á að leika utandyra 2028
TENGT EFNI

HK stefnir á að leika utandyra 2028

Kemur sér afar illa fyrir félagið
„Töf á framkvæmdum kemur sér afar illa fyrir HK. Við erum ein fjölmennasta knattspyrnudeild landsins og það er fyrir löngu byrjað að þrengja að okkur,“ segir Sigurjón aðspurður um framhaldið og heldur áfram.

„Nýr völlur hefði hjálpað til en þó ekki leyst allan vandann. Ég á ekki von á öðru en að Kópavogsbær komi til móts við okkur núna og afhendi okkur fleiri æfingatíma í samræmi við eðlilegar þarfir deildarinnar,“ segir Sigurjón.

Hvenær bindur þú vonir við að framkvæmdir geti hafist?
„Nú þekki ég ekki hversu hratt hlutirnir geta gengið fyrir sig í stjórnsýslunni en það er vonandi að þetta fari í útboð sem allra fyrst og tafirnar verði sem minnstar. Okkur langar að spila úti, auka við æfingapláss og geta haft aðstöðu sem HK-ingar geta verið stoltir af,“ segir formaðurinn.

Myndi ekki kalla þetta „litlu og lélegu“ stúkuna
Gunnar Gylfason, fyrrum starfsmaður KSÍ, skrifaði skoðunarpistil á Vísi fyrr á árinu þar sem hann gagnrýndi fyrirhugaða stúkubyggingu og kallaði hana meðal annars „litla og lélega“.
Segir að stúkan sem á að byggja við Kórinn verði „lítil og léleg“
TENGT EFNI

Segir að stúkan sem á að byggja við Kórinn verði „lítil og léleg“


Pistilinn var borinn undir Sigurjón og hann spurður álits.

„Miðað við þær teikningar sem ég hef séð þá vil ég ekki nota sömu sterku orðin og Gunnar. Eins og ég hef áður nefnt er löngu komið að aukinni aðstöðu fyrir okkur HK-inga. Jafnvel þyrftum við að huga að tveimur gervigrasvöllum enda aðstaðan sprungin og nýtt hverfi á að rísa bráðlega. Það er því ekki mikið svigrúm til frekari tafa á verkefninu,“ segir Sigurjón.

Horfir til aðstöðu ÍA
Aðspurður hvort nýta mætti þá stöðu sem nú er komin upp til að endurskoða teikningar og hönnun stúkunnar segir Sigurjón möguleiki að horfa meira til framtíðar.

„Það má alveg horfa á það að ef menn ætla að setjast aftur að teikniborðinu hvort ekki megi horfa enn þá lengra fram í tímann og tryggja það að aðstaða HK verði líka viðeigandi eftir 30 ár.

Ef það verður niðurstaðan þá hvet ég fulltrúa Kópavogsbæjar og aðra tilvonandi aðila að verkinu til að kíkja upp á Skaga og sjá nýja og glæsilega aðstöðu ÍA.“
Teikning af fyrirhuguðum velli.

Teikning af fyrirhuguðum velli.

Canon

Mynd: VA Arkitektar

HK byrjaði að spila inni í Kórnum árið 2014.

HK byrjaði að spila inni í Kórnum árið 2014.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

„Okkur langar að spila úti, auka við æfingapláss og geta haft aðstöðu sem HK-ingar geta verið stoltir af.“

„Okkur langar að spila úti, auka við æfingapláss og geta haft aðstöðu sem HK-ingar geta verið stoltir af.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurjón l.t.h. við undirskrift Gunnars Heiðars síðasta vetur.

Sigurjón l.t.h. við undirskrift Gunnars Heiðars síðasta vetur.

Canon

Mynd: HK

Útboðið ólögmætt og tafir á framkvæmdum við Kórinn - „Mikil vonbrigði“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.