01.10.26 - 07:15
Elvar Geir Magnússon
Liverpool gæti keypt Schade í janúar

Schade í leik með Brentford.

Mynd: EPA

Bayern hefur áhuga á Foden.

Mynd: EPA

Schade í leik með Brentford.

Mynd: EPA

Það var frí í Þjóðadeildinni í gær og fer hún aftur af stað í dag með áhugaverðum leikjum. En hér er slúðurpakki dagsins í boði Powerade. BBC tók saman.
Liverpool hefur aukinn áhuga á sóknarmanninnum Kevin Schade (24) sem leikur með Brentford og þýska landsliðinu og gæti keypt hann í janúar. Hann hefur einnig verið orðaður við Manchester United. (Teamtalk)
Barcelona hefur staðfest að félagið hafi reynt, en mistekist, að fá til sín argentínska sóknarmanninn Lautaro Martínez (29) frá Inter í sumar. (Fichajes)
Real Madrid og Barcelona hafa bæði sýnt Erling Haaland (26), norskum sóknarmanni Manchester City, mikinn áhuga og eru reiðubúin að grípa tækifærið ef það gefst. (Sun)
Þýska stórliðið Bayern München mun reyna að fá enska miðjumanninn Phil Foden (26) ef hann verður fáanlegur til félagaskipta frá Manchester City. (Teamtalk)
Ítalski varnarmaðurinn Giorgio Scalvini (22) sem leikur með Atalanta vill gjarnan spila erlendis einhvern tímann á ferlinum, en Newcastle og Chelsea hafa þegar sýnt honum áhuga. (Football Italia)
Útlit er fyrir að brasilíski bakvörðurinn Dodo (27), sem er í sigtinu hjá Nottingham Forest, Roma og Napol, muni yfirgefa Fiorentina í janúar. (La Gazzetta dello Sport)
Kantmaðurinn Yankuba Minteh (22) sem leikur með Brighton og Gambíu hefur enn mikinn áhuga á að ganga til liðs við Liverpool eftir að félagaskipti í sumar gengu ekki eftir. (GiveMeSport)