Bandaríska MLS-deildin er mun erfiðari en framherjinn Gonzalo Higuain hélt áður en hann samdi við Inter Miami.
Higuain hefur staðið sig nokkuð vel í Bandaríkjunum en hann býr yfir mikill reynslu.
Argentínumaðurinn hefur spilað fyrir hin ýmsu lið og má nefna Real Madrid, Juventus og Chelsea.
Higuain bjóst við að deildin væri léttari en fékk að kynnast öðru á leiktíðinni.
„Ég hélt ég gæti komið hingað og spilað með sígarettu í kjaftinum en þess í stað þá er þetta erfitt," sagði Higuain.
„Þetta er erfið deild. Ég hef lært að hún er svipuð þeirri ítölsku. Það er auðveldara að gera vel á Englandi og á Spáni en ef þú þekkir ekki deildina á Ítalíu þá færðu að þjást."
Athugasemdir