Víðir Sig um 11. umferð: Fjórar með stóra áfanga og Breiðablik fram úr Val

Agla María Albertsdóttir náði stórum áfanga í 11. umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Agla María Albertsdóttir náði stórum áfanga í 11. umferð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjórir leikmenn í Bestu deild kvenna náðu stórum áföngum á sínum ferli í 11. umferð deildarinnar sem lauk í kvöld þegar FH heimsótti Grindavík/Njarðvík og vann þar stórsigur. Það eru Agla María Albertsdóttir, Sæunn Björnsdóttir, Ingibjörg Lúcía Ragnarsdóttir og Elín Helena Karlsdóttir.
Stjarnan og Þróttur léku tímamótaleiki í umferðinni og Breiðablik skoraði tímamótamark en Kópavogsfélagið hefur einnig siglt fram úr Val sem markahæsta lið deildarinnar frá upphafi.
Stjarnan og Þróttur léku tímamótaleiki í umferðinni og Breiðablik skoraði tímamótamark en Kópavogsfélagið hefur einnig siglt fram úr Val sem markahæsta lið deildarinnar frá upphafi.






