16.08.26 - 17:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Kristall og Ísak lögðu upp - Atli skoraði

Mynd: Sportsklubben Brann

Mynd: Lyngby

Mynd: Sportsklubben Brann
Brann vann 3-0 sigur á HamKam í norsku deildinni í dag. Kristall Máni Ingason skoraði snemma leiks fyrir Brann en markið var dæmt af vegna rangstöðu.
Liðið komst yfir í blálok fyrri hálfleiks og Kristall lagði upp annað markið þegar rúmur stundafjórðungur var til loka leiksins. Eggert Aron Guðmundsson var tekinn af velli stuttu síðar en Sævar Atli Magnússon var fjarverandi vegna meiðsla. Kjartan Már Kjartansson kom inn á í sínum fyrsta leik fyrir Brann fyrir Kristal í uppbótatíma.

Viðar Ari Jónsson var í byrjunarliði HamKam. Brann er í 6. sæti með 25 stig eftir 17 umferðir en HamKam er í 9. sæti meeð 22 stig.
Atli Barkarson var á skotskónum í 2-0 sigri Sogndal gegn Sandnes í næst efstu deild. Hinrik Harðarson kom inn á sem varamaður í 4-0 tapi Egersund gegn Stabæk og Breki Baldursson var ónotaður varamaður í 2-1 sigri Asane gegn Raufoss.
Egersund er í 7. sæti með 26 stig eftir 18 umferðir. Sogndal er í 10. sæti með 21 stig. Asane stökk af botnsætinu upp í 14. sæti með 16 stig.
Ísak Snær Þorvaldsson lagði upp mark Lyngby í 1-1 jafntefli gegn Midtjylland í dönsku deildinni. Hann var í byrjunarliðinu en Daníel Freyr Kristjánsson kom inn á sem varamaður og Davíð Helgi Aronsson var ónotaður varamaður. Elías Rafn Ólafsson var í markinu hjá Midtjylland. Midtjylland er með sjö stig eftir þrjár umferðir en Lyngby með tvö stig.
Hearts vann Inverness 6-2 í 16-liða úrslitum skoska bikarsins. Tómas Bent Magnússon var tekinn af velli eftir klukkutíma leik í stöðunni 2-2.
Eyþór Martin Björgólfsson var ekki með Motherwell þegar liðið tapaði óvænt 1-0 gegn Stenhousemuir sem spilar í næst efstu deild.
Alex Freyr Elísson kom inn á sem varamaður í 4-2 sigri NSÍ Runavík gegn Streymur í færeysku deildinni. Sigurður Ragnar Eyjólfsson er þjálfari NSÍ. Liðið er á toppnum með 40 stig, sex stigum á undan KÍ Klaksvík sem á leik til góða.
Róbert Frosti Þorkelsson var í byrjunarliði GAIS sem tapaði 1-0 gegn Malmö í sænsku deildinni. Daníel Tristan Guðjohnsen kom inn á sem varamaður hjá Malmö í uppbótatíma. Malmö er í 6. sæti með 26 stig en GAIS er í 9. sæti með 23 stig eftir 17 umferðir.